Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
banner
   þri 02. júní 2026 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndir: Ísland æfir með nýju HM boltana
Eimskip
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Íslenska kvennalandsliðið er mætt til Kraká í Póllandi þar sem liðið mun etja kappi við Úkraínu í mikilvægum leik í undankeppni HM á föstudag.

Stelpurnar komu allar til Póllands í gær tóku sína fyrstu æfingu í morgun.

Á æfingunni tók fréttamaður Fótbolta.net eftir því að liðið væri að æfa með nýja HM boltann sem Adidas gefur út. Spilað verður með boltann á HM sem fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó en litur þjóðanna þriggja sést á boltanum.

Mótið hefst eftir rúma viku og er spennan heldur betur farin að myndast.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner
banner