Óskar Borgþórsson, leikmaður Víkings, sagði frá því í viðtölum eftir leikinn gegn Val á sunnudag að hann hefði komið of seint á fund daginn fyrir leik. Óskar svaraði því svo með því að skora þrennu og vera maður leiksins í leiknum á Hlíðarenda.
Ástæðan fyrir því var sú að hann hafði gleymt að stilla vekjaraklukku fyrir laugardagsmorguninn. Liðsfélagi hans, Daníel Hafsteinsson, hringdi svo í hann og vakti þegar fundurinn var að hefjast. Óskar mætti um tíu mínútum of seint á fundinn.
Ástæðan fyrir því var sú að hann hafði gleymt að stilla vekjaraklukku fyrir laugardagsmorguninn. Liðsfélagi hans, Daníel Hafsteinsson, hringdi svo í hann og vakti þegar fundurinn var að hefjast. Óskar mætti um tíu mínútum of seint á fundinn.
Lestu um leikinn: Valur 1 - 5 Víkingur R.
Varstu stressaður um að þú yrðir tekinn úr liðinu?
„Já, ég hugsaði það alveg. Ég hugsaði alveg að ég fengi einhverja stóra refsingu, en sem betur fer ekki," segir Óskar sem er staddur með liðsfélögum á Ítalíu þar sem þeir eru að skoða sig um í kringum Gardavatn. Nú er landsleikjahlé í Bestu deildinni en Víkingur spilar næst í bikanum föstudaginn 12. júní.
Það er regla hjá Víkingi degi fyrir leik að vera með fund áður en farið er út á lokaæfingu fyrir leik. Hvernig var augnablikið þegar þú labbaðir inn á fundinn?
„Ég reyndi að láta eins lítið fyrir mér fara og hægt var þegar ég mætti, ég labbaði beint inn og fann stólinn sem var næstur mér og sagði ekki neitt. Mig langaði að grafa mig ofan í einhverja holu til að sjást ekki. Eftir fundinn fór ég til þjálfaranna og baðst afsökunar á seinkomunni og sagði að þetta kæmi ekki fyrir aftur. Sölvi tók því, var rólegur, en sagði að ef þetta kæmi fyrir aftur yrðu afleiðingar."
Samkvæmt upplýsingum Fótbolta.net hefur álíka atvik ekki komið upp hjá Víkingi, allavega ekki nýlega, en unnið er út frá því að menn fái einn séns áður en þeim er refsað.
Óskar talaði um „fokking mikla sekt" í viðtali við Fótbolta.net eftir Valsleikinn. Með sigurbónus og markabónus, kemur þú út á sléttu?
„Þetta er kannski ekki alveg svo há sekt," segir Óskar og hlær. „Það á ennþá eftir að negla hversu há sektin verður, það voru einhverjar tölur nefndar í klefanum og mér fannst ekkert alltof skemmtilegt að heyra það. En maður tekur það bara á kassann," segir Óskar sem þarf að greiða í sektarsjóð leikmanna eftir seinkomuna.
Hann hefur spilað frábærlega á tímabilinu og er einn af sex leikmönnum sem koma til greina sem leikmaður maí mánaðar í Bestu deildinni að mati Fótbolta.net.


