Kantmaðurinn Óskar Borgþórsson (2003) var síðasta sumar keyptur til Víkings frá norska félaginu Sogndal. Óskar var í tæp tvö ár í Noregi eftir að hafa verið fenginn þangað frá uppeldisfélaginu Fylki.
Frá komu sinni hefur Óskar verið einn af betri leikmönnum Bestu deildarinnar og hjálpaði Víkingum að landa Íslandsmeistaratitlinum síðasta haust. Á þessu tímabili hefur Óskar skorað fjögur mörk og lagt upp þrjú. Óskar var spurður út í samanburðinn á Víkingi og Sogndal.
Frá komu sinni hefur Óskar verið einn af betri leikmönnum Bestu deildarinnar og hjálpaði Víkingum að landa Íslandsmeistaratitlinum síðasta haust. Á þessu tímabili hefur Óskar skorað fjögur mörk og lagt upp þrjú. Óskar var spurður út í samanburðinn á Víkingi og Sogndal.
Af hverju nærðu að blómstra svona í þessu liði en náðir ekki að vera fastamaður í norsku B-deildinni?
„Mér finnst það aðallega vera þjálfarinn, hvað hann hefur mikla trú á mér og hvað hann fílar mig mikið. Það gefur mér miklu meira sjálfstraust og sjálfstraust er númer eitt, tvö og þrjú í fótbolta."
„Það er svo fokking gaman að spila í Víkingi, við erum að spila geggjaðan bolta, allir að tikka og við ætlum að halda þessu áfram."
Hvernig er getustigið samanborið við hvernig þetta var í Noregi?
„Víkingur myndi slátra Sogndal, allavegana liðinu sem ég spilaði með. Víkingur myndi vinna næstefstu deildinni, ég er nokkuð viss um það. En mér fannst samt getustigið vera nokkuð gott í næstefstu deild í Noregi."
Myndir þú lýsa því þannig að munurinn á þér sé trú þjálfarans?
„Já, næstum því bara það. Þetta er líka það að líða vel utan vallar, það hefur mikið að segja. En þetta er aðallega trú þjálfarans."
Hefðir þú getað gert eitthvað öðruvísi til að líða betur utan vallar í Noregi?
„Mér leið mjög vel utan vallar, ég var mjög góður vinur strákanna í liðinu, vorum oft að hittast eftir æfingar og gera eitthvað saman. Utan vallar var ekkert mál. Þetta var bara trúin frá þjálfaranum."
Langar þig að prófa þig aftur úti?
„Ef það kemur eitthvað skemmtilegt upp, eitthvað nammi dæmi sem maður getur ekki sagt nei við, þá er maður alltaf til í það. Ég yrði að velja vel, því mér líður ótrúlega vel í Víkingi og það er ógeðslega gaman að vera í Víkingi. Ég er opinn fyrir öllu einhvern veginn, en er alls ekkert að drífa mig út eða hugsa að ég verði að komast út. Mér líður vel, er að gera mitt og reyni að gera allt 100% fyrir Víking."
Hægri kanturinn eða vinstri?
„Mér er alveg sama, svo lengi sem ég er að spila," segir Óskar fisléttur að lokum.




