Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
banner
   þri 02. júní 2026 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Síða sem einfaldar þér að fylgjast með öllum leikjum og deildum á Íslandi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Margir kannast við Abler og hvernig nýta má þjónustu þess þegar kemur að tómstundarstarfi. Á Abler.io/ksi/ er einnig hægt að fylgjast með gangi mála í fótboltanum á Íslandi, auðvelt að nálgast leikskýrslur og ýmislegt annað.

Undirritaður hefur t.d. nýtt síðuna til að nálgast upplýsingar um dómara á ákveðnum leikjum fyrir leik. Þar er einnig hægt að sjá hvaða leikir hvers dagar hafa verið færðir til og hvenær það var gert.

Hægt er að flokka síðuna eftir félögum, flokkum, kynjum og mótum og það er hægt að skoða alls konar dagsetningar.

Þegar deildir eru svo valdar þá er auðvelt að skruna niður síðuna og sjá alla leikina sem hafa verið spilaðir á tímabilinu, markahæstu menn - allt mjög þægilega sett upp.

Í þeim tilvikum þar sem félögin setja inn lifandi upplýsingar úr leikjunum er hægt að sjá þær upplýsingar á síðunni - eins og í KSÍ appinu.


Slapp
banner