Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fim 02. júlí 2020 12:19
Elvar Geir Magnússon
Carragher valdi sameiginlegt lið Liverpool og Man City
Carragher valdi átta úr Liverpool í liðið.
Carragher valdi átta úr Liverpool í liðið.
Mynd: Getty Images
Jamie Carragher er í skýjunum með að hans menn séu búnir að tryggja sér Englandsmeistaratitilinn. Liverpool spilar í kvöld sinn fyrsta leik eftir að titillinn var tryggður.

Leikið verður gegn meisturum síðasta tímabils, Manchester City.

Í tilefni leiksins valdi Carragher sameiginlegt byrjunarlið þessara tveggja liða. Markvörðurinn og allir í varnarlínunni koma frá Liverpool.

Fyrirliðinn Jordan Henderson er eini leikmaður Liverpool á miðjunni en með honum þar eru Kevin De Bruyne og David Silva. Frammi eru svo Sergio Aguero, Mohames Salah og Sadio Mane.

Sameiginlegt lið City og Liverpool (4-3-3):
Alisson (m)
Trent Alexander-Arnold, Joe Gomez, Virgil van Dijk, Andy Robertson
Jordan Henderson, Kevin De Bruyne, David Silva
Mohamed Salah, Sergio Aguero, Sadio Mane
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner