Fotbolti.net
02.07.23 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Jói útherji

Adria Pedrosa til Sevilla á frjálsri sölu (Staðfest)

Adria Pedrosa til Sevilla á frjálsri sölu (Staðfest)
Canon

Mynd: Sevilla

Spænski vinstri bakvörðurinn Adria Pedrosa hefur skrifað undir fimm ára samning við Sevilla. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Pedrosa er 25 ára gamall og var síðast á mála hjá Espanyol en samningur hans við félagið rann út eftir tímabilið.

Leikmaðurinn kom aðeins við sögu í sjö leikjum með Espanyol á síðustu leiktíð en hann var að glíma við erfið meiðsli og náði því aðeins lokahlutanum.

Espanyol féll niður í B-deildina á Spáni og ákvað Pedrosa að leita annað en í gær samdi hann við Sevilla.

Hann skrifaði undir fimm ára samning og er því annar leikmaðurinn sem félagið fær í sumar, á eftir Federico Gattoni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.