Fotbolti.net
02.07.23 - 16:42
Brynjar Ingi Erluson

Allt á suðupunkti á Akureyri - „Menn eru farnir að heimta aftökur“

KA hefur spilað langt undir getu

KA hefur spilað langt undir getu

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

KA stefndi að því að berjast um titilinn í Bestu deildinni á þessu tímabili en gengið hefur verið langt undir væntingum og er alls konar vandamál að skapast í kringum hópinn.
Liðið tapaði fyrir ÍBV, 2-0, í síðustu umferð en það hefur nú tapað sjö leikjum og er nú tuttugu stigum á eftir Víkingum sem eru á toppnum.

Nú styttist í að liðið taki þátt í forkeppni Sambandsdeildarinnar og þarf þá liðið heldur betur að finna gírinn.

„Það er sorglegt að KA sé ekki í betri gír því það eru allar forsendur til að gera einhverja hluti með þennan drátt í Evrópukeppninni,“ sagði Elvar Geir Magnússon í útvarpsþættinum Fótbolti.net og tók Tómas Þór Þórðarson undir.

„Þið eruð ekkert að fara missa þessi stig í vaskinn þegar þið fáið drátt gegn velsku liði. Gjörið svo vel að hífa upp um ykkur buxurnar og reima þær,“ sagði Tómas sem velti fyrir sér hvort Hallgrímur Jónasson, þjálfari liðsins, væri of nálægt hópnum.

„Haddi fær þetta starf og alls ekki gengið nógu vel. Ef Arnar Grétarsson væri þjálfari þessa liðs, heldur þú að þeir hefðu verið eftir? Er Haddi of nálægt þessu?,“ sagði og spurði Tómas og telur Valur Gunnarsson að það sé einmitt málið.

„Mér sýnist það vera þannig að hann sé of nálægt þessu og of tengdur leikmönnum. Þeir ætluðu sér Íslandsmeistaratitilinn, en það er tilfinningin sem maður hefur að hann sé of nálægt þessu,“ sagði Valur í þættinum.

Stuðningsmenn heimta aftökur

Á dögunum bárust fréttir af því að þeir Harley Willard, Þorri Mar Þórisson og Pætur Petersen væru í agabanni fyrir leikinn gegn Eyjamönnum og staðfesti Hallgrímur þær fregnir.

Tómas segist hafa fengið símhringingar og skilaboð frá stuðningsmönnum KA þar sem þeir heimta aftökur.

„Það er að bruggast þarna of mikil reiði. Ég sat inni í skála á Korpu að bíða eftir fiskibollunum mínum og síminn hringir. Ég hélt ég kannaðist við númerið en ég gerði það ekki og þá var það trylltur KA-maður að heimta aftöku. Fékk svo sms og þar var heimtað aftökur. Þetta er ekkert í fyrsta sinn sem ég hef verið beðinn um lof eða last, en það er eitthvað í gangi þarna og það er ekki gott.“

„Þegar þú ert búinn að lenda í þessu brasi að það gangi illa á vellinum og að þrír leikmenn fari síðan að 'disrespecta' þjálfarann með þessu kjaftæði,“
sagði Tómas enn fremur.

Á föstudag greindi Fótbolti.net frá því að Daníel Hafsteinsson, leikmaður KA, væri að hugsa sér til hreyfings og væri að skoða það að finna sér félag í Reykjavík, en það kemur á óvart að allar þessar fréttir séu að koma þegar það styttist í Evrópuleik.

„Það er að koma Evrópuleikur og það eru fréttir um agabönn og um að menn séu að fara,“ sagði hann í lokin.

KA mætir Connah's Quay frá Wales 13. og 20. júlí næstkomandi en þetta er fyrsta umferð í forkeppni Sambandsdeildarinnar.
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA

Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daníel Hafsteinsson er sagður vera að skoða sín mál

Daníel Hafsteinsson er sagður vera að skoða sín mál

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Útvarpsþátturinn</b> - Tíðindamikil vika í íslenska boltanum

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.