Fotbolti.net
02.07.23 - 15:12
Brynjar Ingi Erluson

Dominik Szoboszlai til Liverpool (Staðfest)

Dominik Szoboszlai er mættur til Liverpool

Dominik Szoboszlai er mættur til Liverpool

Canon

Mynd: Liverpool

Liverpool hefur gengið frá kaupunum á ungverska landsliðsmanninum Dominik Szoboszlai frá RB Leipzig en þetta kemur fram í tilkynningu frá enska félaginu í dag.
Szoboszlai er 22 ára gamall miðjumaður en hann getur einnig spilað á vængnum.

Liverpool greiddi riftunarverð leikmannsins sem var 60 milljónir punda og flaug hann síðan til Bretlandseyja um helgina þar sem hann gekkst undir læknisskoðun áður en hann skrifaði undir fimm ára samning.

Þetta eru önnur kaup Liverpool í sumar en félagið keypti Alexis Mac Allister frá Brighton í síðasta mánuði.

Szoboszlai mun klæðast treyju númer 8.

„Ég er að ganga til lið við sögufrægt félag og algjört toppfélag, þannig ég er mjög ánægður. Síðustu þrír eða fjórir dagar voru mjög langir og þetta var alls ekki svo auðvelt,

„Ég er loksins kominn og get ekki beðið eftir að sjá stuðningsmennina á Anfield,“
sagði Szoboszlai.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.