Fotbolti.net
02.07.23 - 09:00
Brynjar Ingi Erluson

Frosinone búið að tilkynna arftaka Grosso (Staðfest)

Frosinone búið að tilkynna arftaka Grosso (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Frosinone vann B-deildina á Ítalíu á dögunum en það vakti athygli að Fabio Grosso hætti þjálfun liðsins. Félagið hefur nú fundið arftaka hans en Eusebio Di Francesco mun stýra liðinu í Seríu A á komandi leiktíð.
Grosso tók við í mars fyrir tveimur árum. Gildi hans voru að halda í boltann og hafa örlítið frjálsræði. Spilamennska liðsins var frábær á síðustu leiktíð og vannst deildin á sjö stigum auk þess sem liðið fékk einungis 26 mörk á sig.

Samningur Grosso kláraðist eftir tímabilið og tók hann þá ákvörðun að framlengja ekki við félagið.

Eusebio Di Francesco er arftaki hans en hann skrifaði undir samning út tímabilið með möguleika á að framlengja um annað ár.

Di Francesco er með góða reynslu úr Seríu A en hann hefur þjálfað Sassuolo, Roma, Sampdoria, Cagliari og nú síðast Hellas Verona.

Hann starfaði ekki lengi hjá Verona en hann var rekinn eftir aðeins þrjá leiki í starfi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.