Fotbolti.net
02.07.23 - 08:30
Brynjar Ingi Erluson

Jorge Jesus tekur við Al-Hilal í annað sinn (Staðfest)

Jorge Jesus tekur við Al-Hilal í annað sinn (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Portúgalski þjálfarinn Jorge Jesus er tekinn við Al-Hilal í Sádi-Arabíu en þetta var staðfest í gærkvöldi.
Jesus er ævintýramaður mikill en hann hefur þjálfað Flamengo, Fenerbahce, Benfica, Sporting og auðvitað Al-Hilal.

Hann er að mæta á gamla slóðir en að þessu sinni fær hann töluvert betur borgað en síðast.

Jesus er nú launahæsti þjálfari heims og mun þéna 10 milljónir evra í árslaun.

Hansi Flick þénar 6,5 milljónir evra fyrir að þjálfa þýska landsliðið og þá er Gareth Southgate með 5,8 milljónir evra hjá enska fótboltasambandinu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.