Fotbolti.net
02.07.23 - 10:45
Brynjar Ingi Erluson

Man City lánar son Rory Delap til Hull (Staðfest)

Man City lánar son Rory Delap til Hull (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Liam Delap, leikmaður Manchester City, mun eyða leiktíðinni á láni hjá Hull City í ensku B-deildinni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá þrennumeisturunum í dag.
Englendingurinn er 20 ára gamall en hann eyddi síðustu leiktíð á láni hjá bæði Stoke City og Preston North End.

Hann á sex leiki og eitt mark að baki fyrir aðallið Man City en hann mun halda áfram að næla sér í reynslu í B-deildinni.

Delap skrifaði í dag undir eins árs lánssamning við Hull City og var Liam Rosenior, stjóri félagsins, hæst ánægður með að fá kappann.

„Ég er í skýjunum með að Liam sé að koma hingað. Við náðum að hafa betur gegn mörgum öðrum félögum í B-deildinni og frá Evrópu. Þetta er leikmaður sem ég þekki vel til og vitað af í langan tíma,“ sagði Rosenior.

Delap hefur spilað fyrir öll yngri landslið Englands og varð meðal annars Evrópumeistari með U19 ára landsliðinu á síðasta ári.

Hann er sonur Rory Delap, sem lék fyrir Southampton, Stoke og Sunderland, en hann var hvað þekktastur fyrir löng og árangursrík innköst sín.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.