Víkingur fóru í heimsókn á Würth völlinn fyrr í kvöld, leikar enduðu 0-0 bæði lið fengu færi en markmenn beggja liða stóðu sig vel. Sigdís Eva Bárðardóttir kantmaður Víkings kom í viðtal eftir leik.
Lestu um leikinn: Fylkir 0 - 0 Víkingur R.
„Fúlt, við hefðum viljað öll þrjú stigin, það er alltaf erfitt að koma hingað en við erum það gott lið að við hefðum getað tekið þrjú stig.
Mér fannst við eiga klára færin betur en það datt ekki alveg með okkur. Ég veit ég á að gera betur en Tinna er góður markvörður, hún má alveg eiga það."
IFK Norrköping hefur sýnt áhuga á Sigdísi en hún neitaði að tjá sig um málið.
Víkingur er í 5. sæti deildarinnar eftir 11. umferðir
„Við erum ofar en við hefðum getað óskað okkur en við stefnum aðeins hærra."
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Besta-deild kvenna
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Breiðablik | 11 | 10 | 0 | 1 | 28 - 4 | +24 | 30 |
2. Valur | 11 | 10 | 0 | 1 | 32 - 11 | +21 | 30 |
3. Þór/KA | 11 | 7 | 0 | 4 | 26 - 13 | +13 | 21 |
4. FH | 11 | 6 | 1 | 4 | 17 - 17 | 0 | 19 |
5. Víkingur R. | 11 | 4 | 4 | 3 | 16 - 19 | -3 | 16 |
6. Stjarnan | 11 | 4 | 0 | 7 | 15 - 27 | -12 | 12 |
7. Þróttur R. | 11 | 3 | 1 | 7 | 9 - 14 | -5 | 10 |
8. Tindastóll | 11 | 3 | 1 | 7 | 12 - 22 | -10 | 10 |
9. Fylkir | 11 | 1 | 3 | 7 | 10 - 23 | -13 | 6 |
10. Keflavík | 11 | 2 | 0 | 9 | 7 - 22 | -15 | 6 |
Athugasemdir