mán 02. ágúst 2021 11:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Chicharito verið að kljást við meiðsli - Brast í grát
Mynd: Getty Images
Javier Hernandez, betur þekktur sem Chicharito er framherji LA Galaxy í MLS deildinni í Bandaríkjunum.

Hann byrjaði tímabilið af gríðarlegum krafti en hann skoraði tíu mörk í tíu leikjum í upphafi tímabilsins. Þann 23 júní varð hann hinsvegar fyrir því óláni að meiðast í upphitun og hefur ekki spilað síðan.

Hann setti inn myndband á Instagram síðuna sína þar sem hann er að gera upphífingar. Í lokin á myndbandinu má sjá að hann brestur í grát, meiðslin hafa greinilega haft mikil áhrif á leikmanninn.

Hann er ekki enn byrjaður að æfa með liðsfélögunum.

„Við göngum einhvern tíman í gegnum erfiða tíma, í gegnum erfiðar aðstæður og það er í okkar höndum að líta á jákvæðu hliðarnar og líta á það sem góða hvatningu að gefa 100%." skrifaði Chicharito á Instagram.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner