Manchester United ætlar að bjóða bakverðinum Luke Shaw nýjan samning á næstunni samkvæmt the Daily Mail.
Shaw mun væntanlega spila stórt hlutverk á Old Trafford í vetur en hann er aðal vinstri bakvörður liðsins.
Enski landsliðsmaðurinn spilaði einnig á EM í sumar og var frábær með Englandi sem komst alla leið í úrslit.
Samningur Shaw rennur út eftir tvö ár og vill Man Utd alls ekki missa hann úr sínum röðum.
Samkvæmt Mail þá er hugsun Man Utd að verðlauna leikmanninum fyrir góða frammistöðu á mótinu í sumar.
Athugasemdir