Svissneski landsliðsmaðurinn Andi Zeqiri mun spila með Basel á láni frá Brighton á komandi tímabili en þetta kom fram í tilkynningu svissneska félagsins í dag.
Zeqiri er 23 ára gamall framherji, en hann eyddi síðasta tímabili á láni hjá Augsburg þar sem hann gerði 2 mörk í 19 leikjum.
Brighton fékk Zeqiri frá Lausanne fyrir tveimur árum en spilaði aðeins níu deildarleiki fyrir enska félagið á fyrsta tímabili.
Á síðustu leiktíð kom hann við sögu í einum deildarleik með Brighton í 2-0 sigri á Cardiff City og skoraði hann í þeim leik áður en hann var síðan lánaður til Augsburg.
Zeqiri mun eyða komandi tímabili á láni hjá Basel í heimalandinu, en það gerir hann til að auka möguleika sína á að komast á HM sem fer fram í nóvember og desember.
Framherjinn spilaði sinn fyrsta A-landsleik fyrir Sviss á síðasta ári og hefur síðan þá spilað sjö leiki.
Athugasemdir