Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 02. október 2019 18:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Kjaftæði" að Vertonghen hafi sofið hjá kærustu Eriksen
Eriksen hér ásamt varnarmönnunum Toby Alderweireld og Jan Vertonghen.
Eriksen hér ásamt varnarmönnunum Toby Alderweireld og Jan Vertonghen.
Mynd: Getty Images
Christian Eriksen, leikmaður Tottenham, hefur svarað orðrómi um að kærasta hans hafi haldið fram hjá með Jan Vertonghen.

Eriksen og Vertonghen eru liðsfélagar hjá Tottenham.

Sagt var að leikmenn Tottenham væru ekki að tala saman vegna þessa og að Eriksen væri ekki á stað andlega til þess að geta spilað fótbolta.

Danski landsliðsmaðurinn fór á samfélagsmiðilinn Twitter til að svara þessu. Hann gaf stutt en hnitmiðað svar.

„Kjaftæði," skrifaði hann einfaldlega.

Vertonghen svaraði þessu einnig og má sjá bæði svör hér að neðan.

Úrslitin hafa ekki alveg verið að falla með Tottenham að undanförnu og tapaði liðið gegn Bayern München, 7-2, í Meistaradeildinni í gær.



Athugasemdir
banner
banner