02.11.19 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - Erfiðir útileikir fyrir Liverpool og Man Utd

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Það fara hvorki meira né minna en átta leikir fram í ensku úrvalsdeildinni í dag og hefst veislan í hádeginu þegar Bournemouth tekur á móti meiðslahrjáðu liði Manchester United.
Þar er hægt að búast við hörkuleik enda eru liðin jöfn með þrettán stig eftir tíu umferðir. Leikurinn verður sýndur beint á sportstöð Símans.
Aston Villa tekur svo á móti toppliði Liverpool og verður áhugavert að fylgjast með gangi mála þar. Liverpool er með sex stiga forystu á toppinum á meðan Villa er þremur stigum fyrir ofan fallsvæðið.
Jack Grealish og Mohamed Salah, lykilmenn í sitthvoru liðinu, eru tæpir fyrir leikinn en ættu báðir að vera í byrjunarliðunum í dag. Sama á við um Henri Lansbury og Virgil van Dijk.
Arsenal tekur svo á móti Wolves á meðan ríkjandi meistarar Manchester City fá Southampton í heimsókn. City lagði Southampton að velli í deildabikarnum í miðri viku, lokatölur 3-1.
Jóhann Berg Guðmundsson verður ekki með Burnley gegn nýliðum Sheffield United vegna meiðsla.
Síðasti leikur dagsins er áhugaverður þar sem botnlið Watford tekur á móti Chelsea, sem er búið að vinna fjóra deildarleiki í röð.
Leikir dagsins:
12:30 Bournemouth - Man Utd (Síminn Sport)
15:00 Aston Villa - Liverpool (Sjónvarp Símans)
15:00 Arsenal - Wolves
15:00 Man City - Southampton
15:00 Sheffield Utd - Burnley
15:00 Brighton - Norwich
15:00 West Ham - Newcastle
17:30 Watford - Chelsea (Síminn Sport)

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 9 | +9 | 24 |
| 2 | Man City | 9 | +10 | 21 |
| 3 | Brighton | 9 | +17 | 19 |
| 4 | Chelsea | 9 | +4 | 16 |
| 5 | Liverpool | 9 | +2 | 15 |
| 6 | Brentford | 9 | +7 | 14 |
| 7 | Everton | 9 | 0 | 13 |
| 8 | Bournemouth | 9 | +1 | 12 |
| 9 | Tottenham | 9 | 0 | 12 |
| 10 | Aston Villa | 9 | -3 | 12 |
| 11 | Hull City | 9 | +1 | 11 |
| 12 | Leeds | 9 | +1 | 11 |
| 13 | Newcastle | 9 | -3 | 11 |
| 14 | Ipswich Town | 9 | -4 | 11 |
| 15 | Fulham | 9 | -2 | 9 |
| 16 | Coventry | 9 | -7 | 9 |
| 17 | Man Utd | 9 | -5 | 7 |
| 18 | Crystal Palace | 9 | -12 | 7 |
| 19 | Nott. Forest | 9 | -6 | 6 |
| 20 | Sunderland | 9 | -10 | 5 |