Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 03. janúar 2020 16:44
Elvar Geir Magnússon
Jón Ingason aftur í ÍBV (Staðfest)
Jón Ingason lék með ÍBV 2011-2017.
Jón Ingason lék með ÍBV 2011-2017.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn Jón Ingason hefur snúið aftur til ÍBV frá Grindavík.

„Jonna þarf ekki að kynna fyrir Eyjamönnum og er mikil ánægja hjá knattspyrnuráði með að hafa endurheimt peyjann," segir á heimasíðu ÍBV.

Jón kemur til ÍBV í maí en þá lýkur hann námi í Bandaríkjunum. Hann mun spila með ÍBV í janúar áður en hann heldur utan í lokasprett náms síns.

Hann skrifaði í dag undir tveggja ára samning við ÍBV en liðið féll í fyrra úr Pepsi Max-deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner