
Hinn 19 ára gamli Benjamin Friesen er genginn til liðs við Emden sem leikur í fjórðu efstu deild í Þýskalandi.
Friesen er Þjóðverji en hann lék 16 leiki með Gróttu í sumar. Hann fór á reynslu til u23 ára liðs Werder Bremen í heimalandinu fyrir áramót.
Hann getur spilað á báðum köntunum ásamt því að geta spilað sem fremsti miðjumaður.
Hann kom fyrst til Íslands árið 2021 til að skoða aðstæður á Seltjarnanesinu og spilaði einn leik með 2. flokki Gróttu.
Athugasemdir