Marcos Llorente, miðjumaður Atletico Madrid, skírði hundinn sinn Anfield eftir að hafa skorað tvisvar á Anfield í Meistaradeildinni í síðasta mánuði.
Llorente kom inn á sem varamaður og skoraði tvisvar í framlengingu þegar Atletico sló út Liverpool.
Llorente kom inn á sem varamaður og skoraði tvisvar í framlengingu þegar Atletico sló út Liverpool.
Kvöldið var mjög skemmtilegt fyrir hinn 25 ára gamla Llorente, það skemmtilegt að hann ákvað að nefna gæludýrið í höfuðið á vellinum þar sem leikurinn átti sér stað.
Hann birti mynd á samfélagsmiðlinum að hundinum og deildi þar nafninu: „Anfield."
Hér að neðan má sjá umrædda mynd.
Marcos Llorente has only gone a fucking named his dog Anfield! pic.twitter.com/704o8m7cZG
— AtléticoFans (@AtleticoFans) April 3, 2020
Athugasemdir