Fotbolti.net
03.04.21 - 18:47
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Aldrei séð fótboltamann með betri sendingar en De Bruyne

Kevin de Bruyne.

Kevin de Bruyne.

Canon

Mynd: Getty Images

Kevin de Bruyne átti mjög góðan leik fyrir Manchester City í <a href="https://fotbolti.net/news/03-04-2021/england-styttist-i-thann-sjounda" target="_blank">2-0 sigri á Leicester</a> í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Í öðru marki City átti De Bruyne sendingu sem fær mikið lof á samfélagsmiðlum.

Belgíski miðjumaðurinn átti magnaða stungusendingu á Jesus sem lagði hann á Raheem Sterling, en Sterling setti boltann aftur á Jesus sem skoraði.

Hægt er að sjá markið með því að smella hérna.

De Bruyne hefur síðustu ár sannað sig sem einn allra besti miðjumaður í heimi og þessi sending er til marks um þau gæði sem hann býr yfir.

„Ég hef aldrei séð fótboltamann með betri sendingar. Hann getur gert allt," sagði Jamie Redknapp á Sky Sports eftir leikinn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.