Fotbolti.net
03.05.23 - 22:34
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Arnþór Ari: Ég ætla ekki að reyna ljúga því

Auglýsing
Arnþór í leiknum í dag.

Arnþór í leiknum í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

„Rosalega sæt tilfinning, þetta var rosalega erfiður leikur og KR-ingarnir gerðu okkur erfitt fyrir, meira að segja einum færri. Þetta var svon 'grind' sigur einhvern veginn, við lögðum okkur alla fram í þetta og ógeðslega sætur sigur. Ég veit að við eigum gír inni, verðum að gera betur en í dag einum fleiri, en við sluppum með það og ég er rosalega sáttur að ná þremur stigum," sagði Arnþór Ari Atlason, hetja HK-inga, eftir sigur gegn KR í kvöld.
HK lék nánast allan seinni hálfleikinn einum manni fleiri eftir að Jakob Franz Pálsson fékk að líta rauða spjaldið. KR var þó líklegra liðið til að skora mark tvö í leiknum. „Sammála, þeir voru mikið líklegri og tóku yfir leikinn sem var vel gert hjá þeim. Við verðum að gera betur í svona aðstöðu, setja annað mark og drepa leikinn, því þetta stóð tæpt."

Markið hjá Arnþóri kom snemma leiks, fyrirliðinn Leifur Andri átti langa sendingu inn á vítateig KR og Arnþór komst í boltann, lét vaða og skoraði með góðu skoti.

„Með vinstri upp í vinkilinn. Við unnum seinni boltann og ég ákvað að láta vaða. Boltinn skoppaði vel fyrir mig á vinstri löppina og ég lét vaða."

„Já, það var aftur með vinstri, ég verð greinilega að skjóta oftar með vinstri, er miklu líklegri þegar ég nota þá löpp,"
sagði Arnþór um stangarskotið í seinni hálfleik.

„Ég ætla ekki að reyna ljúga því, ég æfi aldrei vinstri og æfi skot ekki nógu mikið einu sinni. En ég fer núna strax á morgun og æfi vinstri löppina eins og vindurinn."

Tíu stig eftir fimm leiki hjá HK. „Algjör draumabyrjun og svo sem eitthvað sem við höfðum trú á sjálfir fyrir mót. Við verðum bara að halda áfram að nýta þetta 'momentum' sem við erum með, safna sem flestum stigum og svo vitum við aldrei hvað gerist. Við verðum bara að horfa upp á við, getum unnið hvaða lið sem er í deildinni, en við getum líka tapað á móti öllum liðunum. Ég er mjög sáttur með tíu stig, hefði tekið því fyrir mót," sagði Arnþór.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst
Markinu fagnað.

Markinu fagnað.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.