03.06.13 - 13:03
Magnús Már Einarsson
Jose Mourinho tekinn við Chelsea (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Jose Mourinho hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Chelsea en félagið staðfesti þetta nú rétt í þessu.
Þessi tíðindi hafa legið í loftinu undanfarna mánuði en Mourinho tekur við Chelsea af Rafael Benítez sem stýrði liðinu tímabundið eftir að Roberto Di Matteo var rekinn í nóvember í fyrra.

Mourinho hefur skrifað undir fjögurra ára samning en hann þekkir mjög vel til hjá Chelsa eftir að hafa stýrt liðinu frá 2004-2007. Þá varð liðið tvívegis enskur meistari undir hans stjórn og sigraði enska bikarinn sem og deildabikarinn tvívegis.
,,Ég er ánægður með að bjóða Jose velkominn aftur til Chelsea,\" sagði Ron Gourlay framkvæmdastjóri Chelsea.
,,Hann hefur haldið áfram að vera vinsæll hjá félaginu og allir hér bíða spenntir eftir að vinna með honum aftur.\"
Hinn fimmtugi Mourinho tók við Inter eftir að hann hætti hjá Chelsea en undanfarin þrjú ár hefur hann stýrt Real Madrid.
Rui Faria, Silvino Louro og Jose Morais koma allir með Mourinho inn í þjálfaralið Chelsea þar sem þeir munu starfa ásamt Steve Holland, Christophe Lollichon og Chris Jones.
Mourinho verður kynntur formlega til leiks sem nýr stjóri Chelsea á fréttamannafundi eftir viku en í kvöld mun Chelsea TV birta viðtal við hann.

Heimild: Heimasíða Chelsea