Fotbolti.net
03.06.15 - 20:37
Aron Elvar Finnsson

Ejub: Sjáum hvort við eigum erindi í að fara upp

Auglýsing
Ejub: Sjáum hvort við eigum erindi í að fara upp
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Borgun
„Ég er bara mjög ánægður með að vera kominn áfram,” sagði Ejub Purisevic þjálfari Víkings Ólafsvíkur eftir 2-3 sigur á Þór í 32-liða úrslitum Borgunarbikars karla.
„Ég er mjög sáttur með seinni hálfleik og ég er líka rosalega sáttur með að við erum allan tímann að reyna að halda boltanum niðri og reyna að spila. Það er gott að hafa karakterinn og halda haus og ná að vinna leikinn í restina.”



Víkingar lögðu greinilega upp með að halda boltanum á jörðinni, sem var þó erfitt þar sem Þórsvöllur er ekki alveg klár. „Það er oft bara eina leiðin til að skapa eitthvað, að halda boltanum með jörðinni og komast nálægt markinu, og okkur tókst það í dag. Völlurinn er svolítið erfiður, en það er samt hægt.”



Varðandi markmið Víkinga í 1.deildinni í sumar sagði Ejub: „Ég er búinn að segja að mér finnst við vera með góðan mannskap en við erum með tiltölulega nýtt lið. Við ætlum bara að spila 7-8 umferðir og sjá hvort við eigum eitthvað erindi í að fara upp. Ég er búinn að segja það, Víkingur getur farið upp, alveg eins og hvað, sex eða sjö lið í viðbót, þannig ég ætla ekki að neita því að fara upp ef tækifæri gefst.”



Nánar er rætt við Ejub hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.