Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
banner
   mið 03. júní 2026 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kraftröðunin fyrir HM: Óvissa með þátttöku og núll sigrar
Sæti 28 til 25
Íranir fagna.
Íranir fagna.
Mynd: EPA
Mehdi Taremi er stærsta stjarna Íran.
Mehdi Taremi er stærsta stjarna Íran.
Mynd: EPA
Trump hefur lagt það til að Ítalía taki sæti Íran á mótinu.
Trump hefur lagt það til að Ítalía taki sæti Íran á mótinu.
Mynd: EPA
Tékkar verða með á HM í sumar.
Tékkar verða með á HM í sumar.
Mynd: EPA
Miroslav Koubek, landsliðsþjálfari Tékka.
Miroslav Koubek, landsliðsþjálfari Tékka.
Mynd: EPA
Tomas Soucek er lykilmaður hjá Tékklandi.
Tomas Soucek er lykilmaður hjá Tékklandi.
Mynd: EPA
Hugo Sochurek er bara 17 ára gamall.
Hugo Sochurek er bara 17 ára gamall.
Mynd: EPA
Skotar fagna.
Skotar fagna.
Mynd: EPA
Steve Clarke, landsliðsþjálfari Skota.
Steve Clarke, landsliðsþjálfari Skota.
Mynd: EPA
Scott McTominay er í fantaformi.
Scott McTominay er í fantaformi.
Mynd: EPA
Svíþjóð vann ekki leik í undankeppninni.
Svíþjóð vann ekki leik í undankeppninni.
Mynd: EPA
Graham Potter er landsliðsþjálfari Svíþjóðar.
Graham Potter er landsliðsþjálfari Svíþjóðar.
Mynd: EPA
Alexander Isak og Viktor Gyökeres eru ágætis dúó.
Alexander Isak og Viktor Gyökeres eru ágætis dúó.
Mynd: EPA
Lucas Bergvall er spennandi.
Lucas Bergvall er spennandi.
Mynd: EPA
Við höldum áfram að hita upp fyrir HM sem fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar. Spennan er heldur betur farin að magnast fyrir þessum viðburði sem verður mögulega sá stærsti í íþróttasögunni.

Það mæta 48 lið til leiks en við á Fótbolta.net kynnum liðin til leiks í sérstakri kraftröðun (e. power rankings) þar sem við röðum liðunum niður frá því slakasta til hins besta. Við tökum fjögur lið fyrir í hverri frétt fram að móti og kynnum við liðin aðeins til sögunnar. Við höldum svo áfram kraftröðuninni á meðan mótinu stendur.

Núna er komið að þeim liðum sem við erum með í sætum 28 til 25 í þessari kraftröðun. Við erum alveg að fara að detta í efri hlutann þegar rúm vika er í mótið.

28. Íran
Eru í 21. sæti á heimslistanum

Það er erfitt að fjalla um Íran fyrir HM 2026 án þess að ræða allt sem gerist utan vallar. Á sama tíma og landsliðið tryggði sér sæti á mótinu hefur spennan milli Írans og Bandaríkjanna verið í hæstu hæðum, sem hefur skapað mikla óvissu í kringum þátttöku þjóðarinnar. Bandaríkin eru eitt af gestgjafaríkjum mótsins og um tíma hefur jafnvel verið rætt hvort pólitískar aðstæður gætu haft áhrif á ferðalög, aðgengi eða þátttöku íranska liðsins. Donald Trump, Bandaríkjaforseti, hefur meðal annars lagt það til að Ítalía taki pláss Íran á mótinu. FIFA hefur hins vegar ítrekað að Íran sé á leið á mótið eins og staðan er í dag. Á vellinum hefur Íran áfram verið eitt sterkasta lið Asíu. Liðið tapaði 2-1 fyrir Nígeríu í vináttuleik í vor en svaraði með sannfærandi 5-0 sigri á Kosta Ríka þar sem Mehdi Taremi skoraði tvö mörk. Reynslan er mikil í hópnum og Íran hefur ítrekað sýnt á síðustu heimsmeistaramótum að það getur verið afar erfitt viðureignar. Riðillinn virðist líka bjóða upp á möguleika. Belgía verður líklega stærsta hindrunin, en gegn Egyptalandi og Nýja-Sjálandi ætti Íran að eiga raunhæfa möguleika á að berjast um sæti í útsláttarkeppninni. Stóra spurningin er þó ekki endilega hvað gerist á vellinum. Fá lið á HM fara inn í mótið með jafn mikla óvissu í kringum sig og Íran.

Þjálfarinn: Amir Ghalenoei er einn reynslumesti þjálfari sem Íranir hafa upp á að bjóða en hann er núna að stýra landsliðinu í annað sinn eftir að hafa verið fyrst með það frá 2006 til 2007. Hann hefur unnið fjölda titla í heimalandinu og nýtur mikillar virðingar innan íranska fótboltasamfélagsins. Ghalenoei hefur lagt áherslu á skipulagðan og agaðan leik sem hefur lengi verið eitt helsta einkenni liðsins.

Lykilmaður: Mehdi Taremi (Olympiakos) er stærsta stjarna liðsins og sá sem mestar vonir eru bundnar við í sóknarleiknum. Það eru ekki gríðarlega mörg þekkt nöfn í liðinu og Taremi er það stærsta. Framherjinn hefur um árabil verið meðal bestu leikmanna Asíu og býr yfir bæði markanefi og reynslu af hæsta stigi evrópska fótboltans. Þegar Íran þarf á stóru augnabliki að halda er yfirleitt litið til Taremi.

Gaman að fylgjast með: Amirmohammad Razzaghinia (Esteghlal) er aðeins tvítugur og yngsti leikmaðurinn í íranska hópnum. Miðjumaðurinn sló í gegn með Gol Gohar og Esteghlal í írönsku úrvalsdeildinni og vakti það mikla athygli að hann var valinn í HM-hópinn þrátt fyrir takmarkaða reynslu á hæsta stigi. Razzaghinia er af mörgum talinn einn efnilegasti leikmaður sem Íran hefur alið af sér um árabil og gæti nýtt heimsmeistaramótið sem stökkpall í Evrópuboltann.

Leikir á HM: Nýja-Sjáland í Los Angeles (15. júní); Belgía í Los Angeles (21. júní); Egyptaland í Seattle (26. júní).

27. Tékkland
Eru í 41. sæti á heimslistanum

Tékkland er komið aftur á HM í fyrsta sinn í tuttugu ár en leiðin á mótið var allt annað en einföld. Tékkar lentu í vandræðum í undankeppninni, töpuðu meðal annars óvænt fyrir Færeyjum og enduðu á eftir Króatíu í sínum riðli. Í umspilinu þurfti liðið svo að fara í gegnum tvær vítaspyrnukeppnir gegn Írlandi og Danmörku til að tryggja sér sæti á HM. Raunar voru Tékkar aðeins örfáum mínútum frá því að falla úr leik gegn lærisveinum Heimis Hallgrímsson frá Írlandi áður en Ladislav Krejci jafnaði metin seint í leiknum. Það opnaði dyrnar að dramatískri vítaspyrnukeppni og að lokum HM-sætinu sem þjóðin hafði beðið eftir í tvo áratugi. Liðið byggir áfram á klassískum tékkneskum gildum: Sterkum föstum leikatriðum, líkamlegum styrk og góðu skipulagi. Það er hins vegar spurning hvort þeir eiginleikar dugi gegn bestu þjóðum heims þegar komið er á lokamótið. Patrik Schick er enn helsta markavon liðsins en almennt skortir Tékkum stór nöfn miðað við margar aðrar Evrópuþjóðir.

Þjálfarinn: Miroslav Koubek tók við landsliðinu í desember á síðasta ári og varð saga hans strax ein af áhugaverðustu sögunum í evrópskum landsliðsfótbolta. Koubek er 74 ára gamall og hafði aldrei áður stýrt landsliði þegar hann var fenginn til verksins. Leiðin hans að þessu starfi var gríðarlega löng. Hann viðurkenndi sjálfur eftir að HM-sætið var tryggt að augun hefðu orðið „örlítið vot“ eftir eitt stærsta augnablik ferilsins.

Lykilmaður: Tomas Soucek (West Ham) hefur verið burðarás tékkneska landsliðsins um árabil. Leiðtoginn á miðsvæðinu er þekktur fyrir vinnusemi, fyrir að vera sterkur skallamaður og hæfileikann til að mæta inn í teiginn á réttum augnablikum. Fá lið á HM munu treysta jafn mikið á sinn miðjumann í föstum leikatriðum og Tékkland treystir á Soucek.

Gaman að fylgjast með: Hugo Sochurek (Sparta Prag) er eitt mesta efni sem Tékkar hafa alið upp í langan tíma. Ungi miðjumaðurinn hefur farið hratt upp stigann undanfarin ár og margir telja að hann geti orðið fastamaður í landsliðinu næsta áratuginn. HM er fyrsta stóra sviðið þar sem heimurinn kynnist honum ef hann fær að spreyta sig en hann er bara 17 ára gamall.

Leikir á HM: Suður-Kórea í Guadalajara (11. júní); Suður-Afríka í Atlanta (18. júní); Mexíkó í Mexico City (24. júní).

26. Skotland
Eru í 43. sæti á heimslistanum

Hressu Skotarnir verða með á HM í fyrsta sinn síðan 1998 og það eitt og sér er stór stund fyrir skoskan fótbolta. Leiðin á mótið var bæði dramatísk og eftirminnileg, ekki síst vegna magnaðs sigurs á Danmörku sem tryggði sætið á mótið. Það hefur þó ekki verið allt á uppleið. EM 2024 var vonbrigði og undirbúningurinn fyrir HM hefur verið misjafn, þar sem Steve Clarke hefur enn verið að reyna að finna rétta jafnvægið á liðinu. Engu að síður er þetta lið sem hefur þróast mikið undir hans stjórn og er orðið mun skipulagðara og erfiðara að eiga við en áður. Styrkur Skotlands liggur í baráttu, skipulagi og sterkri miðju, en spurningin er hvort það dugi gegn sterkari þjóðum á stórmóti. Riðillinn býður upp á raunhæf tækifæri, sérstaklega ef þeir ná góðri byrjun gegn Haítí.

Skotland er með eitt besta stuðningsmannalag mótsins.



Þjálfarinn: Steve Clarke hefur gert afskaplega vel með skoska landsliðið. Hann batt enda á langa bið þegar hann fór með Skotland á EM 2021 og hefur síðan haldið áfram að byggja upp lið sem er skipulagt, agað og erfitt að brjóta niður. Clarke er ekki maður stórra yfirlýsinga en nýtur mikils trausts í klefanum. Hann hefur stýrt Skotlandi frá 2019 en var áður stjóri West Brom, Reading og Kilmarnock.

Lykilmaður: Scott McTominay (Napoli) hefur breyst gjörsamlega frá því hann gekk í raðir Napoli frá Manchester United fyrir síðasta tímabil. Hann er orðinn eitursvalur og hefur jafnframt bætt sig mikið innan vallar. Hann var besti leikmaður Serie A á síðasta tímabili og átti líka fínasta tímabil núna. Hann er stærsta stjarnan í þessu liði ásamt bakverðinum Andy Robertson.

Gaman að fylgjast með: Ben Gannon Doak (Bournemouth) er spennandi kantmaður sem býr yfir hraða og áræðni sem getur breytt leikjum á skömmum tíma. Hann gæti orðið einn af þeim leikmönnum sem kveikir líf í sóknarleik Skotlands á HM. Kom upp hjá Liverpool en er núna á mála hjá Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni.

Leikir á HM: Haítí í Boston (13. júní); Marokkó í Boston (19. júní); Brasilía í Miami (24. júní).

25. Svíþjóð
Eru í 38. sæti á heimslistanum

Svíar ættu í raun ekki að vera nálægt þessu móti. Svíþjóð vann nefnilega ekki einn einasta leik í hefðbundinni undankeppni en héldu lífi í voninni í gegnum Þjóðadeildina og nýttu sér síðan umspilið til fulls. Þar lögðu þeir bæði Úkraínu og Pólland að velli, og Viktor Gyökeres reyndist hetjan með fjögur mörk í leikjunum tveimur, þar á meðal sigurmarkið gegn Pólverjum í úrslitaleiknum á 88. mínútu. Það er því erfitt að átta sig nákvæmlega á hversu sterkt þetta sænska lið er. Á pappír virðist hópurinn ágætur en árangurinn í undankeppninni var í raun og veru hörmulegur. Sóknarlínan er spennandi með Gyökeres og Alexander Isak og Graham Potter virðist hafa náð að blása nýju lífi í landsliðið eftir að hann tók við stjórnartaumunum. Skemmtilegt hefur verið að fylgjast með honum spreyta sig á sænsku eftir að hafa áður stýrt Östersund með frábærum árangri. Svíar fara því inn í mótið með sjálfstraust eftir dramatískt umspil og vonast til að geta komið á óvart. Ef fremstu menn ná sér á strik gæti þetta orðið lið sem enginn vill mæta í útsláttarkeppninni.

Þjálfarinn: Graham Potter tók við sænska landsliðinu eftir nokkuð erfiðan tíma í félagsliðaboltanum. Enski þjálfarinn skapaði sér gott orðspor hjá Östersund og Brighton áður en dvölin hjá Chelsea reyndist erfið. Dvölin hjá West Ham var jafnvel erfiðari. Nú hefur hann komið Svíum á HM og fær tækifæri til að stýra liði á stærsta sviði landsliðsfótboltans. Potter er mjög vinsæll í Svíþjóð og er með þjóðina á bak við sig.

Lykilmaður: Viktor Gyökeres (Arsenal) átti ekki sitt besta tímabil á ferlinum eftir félagaskiptin til Arsenal en hann átti sín augnablik með ensku meisturunum. Í landsliðinu er mikilvægi hans gífurlegt en hann var maðurinn sem nánast dró Svía í gegnum umspilið með markaskorun sinni. Ef Svíþjóð ætlar sér að fara langt verður mikið lagt á herðar hans.

Gaman að fylgjast með: Lucas Bergvall (Tottenham) er aðeins tvítugur en er þegar orðinn einn mest spennandi miðjumaður heims. Hann vakti mikla athygli þegar hann samdi við Tottenham frá Djurgården ungur að árum og margir telja hann næstu stóru stjörnu Norðurlanda. HM gæti orðið vettvangurinn þar sem hann kynnir sig endanlega fyrir alþjóðlegum áhorfendum.

Leikir á HM: Túnis í Monterrey (14. júní); Holland í Houston (20. júní); Japan í Dallas (25. júní).

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner