Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
banner
   mið 03. júní 2026 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Lewis Hall ofarlega á óskalista Man Utd
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Manchester United er í leit að nýjum leikmönnum og vantar mann í vinstri bakvarðarstöðuna til að veita meiðslahrjáðum Luke Shaw aukna samkeppni um byrjunarliðssæti.

The Athletic er meðal breskra fjölmiðla sem greina frá því að Lewis Hall sé helsta skotmarkið fyrir stöðuna.

Hall er 21 árs gamall sókndjarfur bakvörður sem getur einnig spilað á miðjunni. Hann lék 37 leiki fyrir yngri landslið Englands og er með fjóra A-landsleiki að baki, en var ekki valinn í lokahópinn fyrir HM.

Hall braust fram í sviðsljósið hjá uppeldisfélagi sínu Chelsea og fékk fljótt félagaskipti til Newcastle, sem greiddi 35 milljónir punda fyrir.

Þau félagaskipti fóru fram fyrir þremur árum þegar Hall var aðeins 18 ára gamall og hefur hann spilað 102 keppnisleiki fyrir félagið síðan.

Ýmis stórveldi eru áhugasöm um að tryggja sér þjónustu Hall sem á þrjú ár eftir af samningi. Newcastle vill helst ekki selja en gæti samþykkt tilboð sem hljóða upp á 55 til 60 milljónir punda.

   14.05.2026 13:04
Þessir eru tilnefndir sem besti ungi leikmaður tímabilsins

Slapp
banner
banner