Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
banner
   mið 03. júní 2026 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kraká
Thelma Karen um U19: Ekki í mínum höndum
Eimskip
Thelma Karen í leik með A-landsliðinu.
Thelma Karen í leik með A-landsliðinu.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Var efnilegasti leikmaður Bestu deildarinnar í fyrra og spilar í dag með sænska félaginu Häcken.
Var efnilegasti leikmaður Bestu deildarinnar í fyrra og spilar í dag með sænska félaginu Häcken.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Thelma Karen Pálmadóttir er gjaldgeng til að spila með U19 landsliðinu í lokakeppni Evrópumótsins í sumar. Hún varð 18 ára gömul fyrr í sumar og er hluti af A-landsliði Íslands þessa stundina en U19 landsliðið tekur þátt í lokakeppni Evrópumótsins í Bosníu og Hersegóvínu sem hefst í lok júní.

Thelma Karen ræddi við Fótbolta.net í gær í Kraká þar sem hún er í verkefni með A-landsliðinu og var þar spurð út í mótið í sumar, hvort hún fari með á það.

„Þær stóðu sig ekkert eðlilega vel," sagði Thelma Karen um vinkonur sínar í U19 landsliðinu. Hún var í verkefni með A-landsliðinu er þær komust inn á mótið.

„Ég var ekkert smá stolt af þeim, að vinna Danmörku loksins en við höfum tapað á móti þeim alltof oft. Það var ógeðslega gaman að fylgjast með þeim."

Ætlar þú að taka þátt í lokakeppninni?

„Það er ekki í mínum höndum. Ég treysti þjálfaranum mínum, fólkinu í Häcken og Donna (þjálfara U19 landsliðsins) að taka ákvörðun um þetta. Það er langt tímabil hjá Häcken. Ég veit ekki, hef ekki hugmynd."

Thelma Karen er lykilmaður fyrir Häcken í sænsku úrvalsdeildinni. Þetta er samt sem áður spennandi tækifæri.

„Að fara á stórmót með yngri landsliði er örugglega geðveikt skemmtilegt og það yrði sjúklega spennandi að fara. Ég tek niðurstöðunni hver sem hún verður, en það yrði geðveikt að fara."
Slapp
banner
banner
banner