Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 03. júlí 2020 14:54
Elvar Geir Magnússon
Í sóttkví og horfði á leikinn uppi á gámi
Rajko Stanisic  horfði á kvennaleikinn.
Rajko Stanisic horfði á kvennaleikinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rajko Stanisic, markvarðaþjálfari Stjörnunnar í karla- og kvennaflokki, er í sóttkví eftir að leikmaður karlaliðsins greindist með kórónaveiruna.

Rajko var þó mættur á völlinn þegar Stjarnan lék gegn Selfossi í Pepsi Max-deild kvenna í vikunni.

Rajko var einn uppi á gámi við völlinn og fylgdist þannig með leiknum.

Hans lið átti ekki góðan dag og Selfoss fagnaði 4-1 sigri.

Meðfylgjandi eru skemmtilegar myndir af Rajko sem Hafliði Breiðfjörð tók í Garðabænum.
Athugasemdir
banner
banner
banner