Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 03. júlí 2021 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bjóða félögum í C-deild að kaupa Jón Daða - Áhugi þar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Millwall er að reyna að selja íslenska landsliðsframherjann Jón Daða Böðvarsson.

Samkvæmt fjölmiðlamanninum Darren Witcoop þá er Millwall búið að bjóða félögum í ensku C-deildinni að kaupa Jón Daða og er áhugi á honum þar.

Witcoop segir að Portsmouth og AFC Wimbledon hafi áhuga á Selfyssingnum.

Hinn 29 ára gamli Jón Daði gekk í raðir Millwall 2019 en hann hefur ekki verið öflugur í markaskorun fyrir félagið. Hann er bara búinn að skora fimm mörk í 69 leikjum í Championship fyrir Millwall.

Jón Daði skoraði aðeins eitt mark í 38 deild­ar­leikj­um með Millwall í ensku B-deild­inni á síðustu leiktíð og var aðeins þrett­án sinn­um í byrj­un­arliði.


Athugasemdir
banner
banner