Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 03. júlí 2022 13:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Botman vill ná jafn langt og Van Dijk: Er langt frá því
Mynd: Getty Images

Sven Botman gekk til liðs við Newcastle á dögunum frá Lille. Þessi 22 ára gamli hollenski miðvörður. Honum hefur verið líkt við landa sinn Virgil van Dijk.


„Ég er langt frá því að vera í hans gæðaflokki. Ég vil komast þangað, það er auðvitað mitt markmið," sagði Botman við NUFC TV.

„Van Dijk er frábær varnarmaður en ég er langt frá honum en að spila í úrvalsdeildinni gefur mér tækifæri á að nálgast hann. Einn daginn vonast ég eftir því að vera eins og hann en ég þarf mikinn tíma og marga leiki. Eins og ég sagði, þetta er frábært umhverfi hjá Newcastle til að bæta sig og verða eins og hann."

Botman var mikið orðaður við Newcastle í janúar en Newcastle náði ekki samkomulagi við Lille. AC Milan hafði einnig áhuga á leikmanninum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner