Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 03. júlí 2022 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Vidal er á leið til Flamengo
Mynd: Getty Images

Hinn 35 ára gamli Arturo Vidal er á leið til Flamengo þrátt fyrir að eiga eitt ár eftir af samningi sínum við Inter.


Inter er fegið að losna við Vidal af launaskránni og gæti verið að Flamengo þurfi að borga einhverja lága upphæð til að brúa launabilið sem Vidal hefði fengið á síðasta árinu hjá Inter og það sem hann mun fá hjá Flamengo.

Vidal tók þátt í 41 leik á síðustu leiktíð þar sem hann kom þó yfirleitt inn af bekknum á lokakafla leikja til að bæta reynslu og grimmd á miðjuna.

Hann lék í heildina 71 leik á tveimur árum hjá Inter en þar áður var hann hjá Barcelona, FC Bayern og Juventus.

Vidal á 133 landsleiki að baki fyrir Síle og er enn að spila fyrir þjóð sína.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner