Fotbolti.net
03.07.26 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson

2. deild kvenna: Fjölnir vann toppslaginn - Fylkir með 62 mörk í átta leikjum

Fjölnir er á toppnum

Fjölnir er á toppnum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Fylkir og Fjölnir unnu stóra sigra í 2. deild kvenna í gær.
Lestu um leikinn: Fylkir 6 - 0 ÍR
Fylkiskonur héldu áfram að raða inn mörkum þegar þær unnu öruggan 6-0 sigur á ÍR á tekkvellinum.

Birta Margrét Gestsdóttir var á meðal markaskorara hjá Fylki og er áfram markahæst í deildinni með fimmtán mörk. Birna Kristín Eiríksdóttir, Elísa Björk Hjaltadóttir, Karen Dís Vigfúsdóttir, Tinna Harðardóttir og Kolfinna Baldursdóttir komust einnig á blað.

Karen, sem er fædd árið 2011, er heldur betur komin á skrið en þetta var sjötta deildarmark hennar á tímabilinu.

Fylkir er í 3. sæti með 19 stig og markatalan er eiginlega fáránleg. Liðið hefur skorað 62 mörk í aðeins átta leikjum.

Fjölnir vann þá toppslaginn gegn Aftureldingu nokkuð sannfærandi, 5-1. Ainhoa Plaza Porcel fór á kostum og skoraði þrennu fyrir Fjölni, en hún er nú komin með tólf mörk í deildinni.

Oliwia Bucko skoraði tvö mörk fyrir Fjölni og Sarai Vela Menchon gerði eina mark Aftureldingar.

Fjölniskonur eru taplausar á toppnum með 22 stig eftir sjö sigra og eitt jafntefli. Afturelding er í 2. sæti með 21 stig og Fylkir fylgir fast á eftir í þriðja.

Fylkir 6 - 0 ÍR
1-0 Birna Kristín Eiríksdóttir ('29 )
2-0 Elísa Björk Hjaltadóttir ('45 )
3-0 Birta Margrét Gestsdóttir ('45 )
4-0 Karen Dís Vigfúsdóttir ('59 )
5-0 Tinna Harðardóttir ('82 )
6-0 Kolfinna Baldursdóttir ('85 )

Afturelding 1 - 5 Fjölnir
1-0 Sarai Vela Menchon ('19 )
1-1 Oliwia Bucko ('28 )
1-2 Ainhoa Plaza Porcel ('45 )
1-3 Ainhoa Plaza Porcel ('53 )
1-4 Oliwia Bucko ('61 )
1-5 Ainhoa Plaza Porcel ('77 )
Fylkiskonur eru búnar að skora 62 mörk

Fylkiskonur eru búnar að skora 62 mörk

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Fjölnir10+4025
2Einherji10+5024
3Vestri10+3524
4Fylkir10+5723
5Afturelding10+2522
6Augnablik11-1516
7Dalvík/Reynir10-714
810-1213
9KFR11-428
10ÍR11-185
11Álftanes10-322
12Smári11-811
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.