Ruben Dias getur tekið við fyrirliðabandinu hjá Manchester City bráðlega að sögn Richard Dunne, fyrrum leikmanns liðsins.
Man City borgaði 65 milljónir punda fyrir Dias síðasta sumar og blómstraði hann á sinni fyrstu leiktíð á Etihad.
Dunne þekkir vel til félagsins og hefur trú á að Dias geti borið liðið á herðum sér í framtíðinni.
„Hann mun leitast eftir því að byrja tímabilið vel því sem miðvörður var enginn nálægt honum á síðustu leiktíð," sagði Dunne.
„Maður myndi ímynda sér að hann væri búinn að aðlagast og væri í þægilegra umhverfi svo hann geti bætt sig enn frekar."
„Hinir leikmennirnir hafa kynnst honum og vita við hverju á að búast. Hann er ungur en er með þennan brag yfir sér."
„Ég held að hann komi til greina sem fyrirliði í framtíðinni."
Athugasemdir