Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 03. ágúst 2022 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Chelsea búið að finna arftaka Azpilicueta?
Kyle Walker-Peters
Kyle Walker-Peters
Mynd: EPA
Enski hægri bakvörðurinn Kyle Walker-Peters gæti verið á leið til Chelsea frá Southampton en þetta kemur fram í Guardian.

Walker-Peters er 25 ára gamall og verið að gera góða hluti með Southampton síðustu tvö ár eða síðan hann kom frá Tottenham Hotspur.

Hann er ofarlega á blaði hjá Chelsea en félagið er í leit að arftaka Cesar Azpilicueta, sem er við það að ganga í raðir Barcelona á Spáni.

Guardian greinir frá því að Chelsea gæti fengið Walker-Peters fyrir 30-35 milljónir punda.

Hollenski hægri bakvörðurinn Denzel Dumfries er einnig á lista hjá Chelsea en hann hefur staðið sig frábærlega hjá Inter á Ítalíu síðan hann kom frá PSV fyrir ári síðan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner