18.09.26 - 17:00
Elvar Geir Magnússon
Tuchel: Þeir þurfa að standa sig

Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands.

Mynd: EPA

Trent Alexander-Arnold.

Trent Alexander-Arnold og Cole Palmer eru í enska landsliðshópnum fyrir komandi landsleikjaglugga. Þeir þurftu að bíta í það súra epli að fara ekki með á HM í sumar en Thomas Tuchel velur þá núna.
Trent hefur spilað fimm leiki með Real Madrid á tímabilinu og
Palmer hefur byrjað tímabilið frábærlega með Chelsea, er með fjögur mörk og tvær stoðsendingar.

TENGT EFNI
Trent, Palmer og Rio í enska landsliðshópnum
„Þeir hafa byrjað tímabilið vel. Nú er ný keppni að hefjast. Cole er byrjaður að skila sínum tölum aftur, er að leggja upp og skora mikilvæg mörk og þess vegna er hann valinn. Þeir hafa báðir eitthvað að sanna en þeir hafa aldrei farið af blaðinu hjá mér," segir Tuchel.
Alexander-Arnold lék á miðjunni hjá Real Madrid í sigri gegn Inter í Meistaradeildinni fyrr í þessum mánuði en Tuchel segist velja hann sem bakvörð.
„Hann hefur spilað vel í tveimur stöðum fyrir Real Madrid en er valinn í þennan hóp sem hægri bakvörður. Þeir voru ekki með okkur á HM og við settum traust á aðra leikmenn. Þeir þurfa að berjast fyrir sæti í liðinu, þeir þurfa að standa sig."