Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 03. ágúst 2022 17:52
Ívan Guðjón Baldursson
Kasper Schmeichel og Mattia Viti til Nice (Staðfest)
Mynd: EPA

Danski landsliðsmarkvörðurinn Kasper Schmeichel er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við franska félagið Nice og er hann fjórði leikmaðurinn sem kemur í byrjun mánaðar.


Kaupverðið á Schmeichel er óuppgefið en hann hefur aðeins kostað nokkrar milljónir punda þar sem þessi 35 ára markvörður, 36 í nóvember, var meðal launahæstu leikmanna Leicester og átti eitt ár eftir af samningnum.

Leicester því í leit að nýjum markverði eftir að Schmeichel lék 479 leiki á ellefu árum.

Nice var einnig að krækja í ítalska varnarmanninn Mattia Viti fyrir 15 milljónir evra. Viti er U21 landsliðsmaður og gerði góða hluti með Empoli á síðustu leiktíð.

Þessir tveir leikmenn bætast við eftir að velski miðjumaðurinn Aaron Ramsey og franski varnarmaðurinn Alexis Beka Beka voru staðfestir um mánaðamótin.

Beka Beka, sem fór með franska U23 liðinu á Ólympíuleikana í fyrra, kostaði 14 milljónir evra á meðan Ramsey kom á frjálsri sölu frá Juventus.


Athugasemdir
banner
banner
banner