Sádar búast við því að Salah fari frá Liverpool í sumar - Vicario á blaði hjá Inter - Palace hefur rætt við Úlfana um Strand Larsen
   lau 03. september 2022 20:44
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Kvaratskhelia aftur hetjan í sigri gegn Lazio
Nafn til að leggja á minnið: Khvicha Kvaratskhelia. Kantmaður með fjögur mörk og eina stoðsendingu í fimm fyrstu deildarleikjunum á Ítalíu.
Nafn til að leggja á minnið: Khvicha Kvaratskhelia. Kantmaður með fjögur mörk og eina stoðsendingu í fimm fyrstu deildarleikjunum á Ítalíu.
Mynd: EPA

Lazio 1 - 2 Napoli
1-0 Mattia Zaccagni ('4)
1-1 Kim Min-jae ('38)
1-2 Khvicha Kvaratskhelia ('61)


Lazio og Napoli áttust við í lokaleik á svakalegum laugardegi í ítalska boltanum þar sem þrír stórleikir voru spilaðir.

Mattia Zaccagni skoraði snemma leiks með góðu skoti utan teigs og jafnaði Suður-Kóreski landsliðsmaðurinn Kim Min-jae með skalla eftir hornspyrnu. Luis Alberto var af einhverri óskiljanlegri ástæðu að dekka Kim.

Napoli var með yfirhöndina í fyrri hálfleik og skipti svo um gír í þeim síðari. Heimamenn í Lazio réðu ekki við gestina og skoraði hinn funheiti Khvicha Kvaratskhelia næsta mark á 61. mínútu. Hann þrumaði boltanum í netið eftir sendingu frá Zambo Anguissa, sem yfirgaf Fulham til að spila með Napoli.

Lazio reyndi að finna jöfnunarmark undir lokin en allt kom fyrir ekki. Napoli verðskuldaði þennan sterka sigur á útivelli.

Napoli jafnar AC Milan á toppi deildarinnar með þessum sigri þar sem bæði lið eru með ellefu stig eftir fimm umferðir. Lazio situr eftir með átta stig.


Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 21 16 1 4 44 17 +27 49
2 Milan 21 13 7 1 34 16 +18 46
3 Napoli 21 13 4 4 31 17 +14 43
4 Roma 21 14 0 7 26 12 +14 42
5 Juventus 21 11 6 4 32 17 +15 39
6 Como 21 10 7 4 31 16 +15 37
7 Atalanta 21 8 8 5 26 20 +6 32
8 Bologna 21 8 6 7 30 24 +6 30
9 Lazio 21 7 7 7 21 19 +2 28
10 Udinese 21 7 5 9 22 33 -11 26
11 Sassuolo 21 6 5 10 23 28 -5 23
12 Cremonese 21 5 8 8 20 28 -8 23
13 Parma 21 5 8 8 14 22 -8 23
14 Torino 21 6 5 10 21 34 -13 23
15 Cagliari 21 5 7 9 22 30 -8 22
16 Genoa 21 4 8 9 22 29 -7 20
17 Fiorentina 21 3 8 10 23 32 -9 17
18 Lecce 21 4 5 12 13 29 -16 17
19 Pisa 21 1 11 9 16 31 -15 14
20 Verona 21 2 8 11 17 34 -17 14
Athugasemdir
banner