Ein breyting hefur orðið á hópnum hjá U21 landsliðinu fyrir leiki gegn Danmörku og Wales í undankeppni EM 2025. Fyrri leikurinn er leikur gegn Danmörku á Víkingsvelli á föstudag og hefst hann klukkan 15:00.
Óli Valur Ómarsson er að glíma við veikindi og inn í hópinn kemur Jón Gísli Eyland Gíslason. Báðir geta þeir leyst meira en eina stöðu og spila oftast í hægri bakverði eða vængbakverði.
Jón Gísli er árinu eldri en Óli Valur og á að baki 32 leiki fyrir yngri landsliðin. Jón Gísli er leikmaður ÍA og hefur átt gott tímabil með nýliðunum í Bestu deildinni.

Hópurinn
Adam Ingi Benediktsson – Östersund – 6 leikir
Lúkas J. Blöndal Peterson – Hoffenheim – 4 leikir
Andri Fannar Baldursson – Elfsborg – 18 leikir
Kristall Máni Ingason – SönderjyskE – 17 leikir, 8 mörk
Róbert Orri Þorkelsson – Kongsvinger – 15 leikri, 1 mark
Ólafur Guðmundsson – FH – 10 leikir
Valgeir Valgeirsson – Örebro – 9 leikir
Ísak Andri Sigurgeirsson – IFK Norrköping – 8 leikir
Logi Hrafn Róbertsson – FH – 8 leikir
Jón Gísli Eyland - ÍA
Davíð Snær Jóhannsson – Álasund – 6 leikri, 2 mörk
Ari Sigurpálsson – Víkingur R. – 5 leikri, 1 mark
Anton Logi Lúðvíksson – Haugasund – 5 leikir
Hlynur Freyr Karlsson – Brommapojkarna – 5 leikir
Óskar Borgþórsson – Sogndal – 5 leikri
Eggert Aron Guðmundsson – Elfsborg – 4 leikir
Hilmir Rafn Mikaelsson – Kristiansund– 1 leikur
Benoný Breki Andrésson – KR – 1 leikur
Daníel Freyr Kristjánsson – FC Frederica – 1 leikur
Gísli Gottskálk Þórðarson – Víkingur R.
Breyting á hóp U21 liðs karla
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) September 3, 2024
Jón Gísli Eyland Gíslason kemur inn í stað Óla Vals Ómarssonar vegna veikinda pic.twitter.com/PifYY5CbEx
Athugasemdir