03.09.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Ætla alls ekki að láta eitthvað fólk úr Fossvoginum eyðileggja þennan dag fyrir mér"

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það var mikil dramatík þegar KR og Víkingur skildu jöfn á Meistaravöllum á þriðjudaginn en leiknum lauk með 1-1 jafntefli þar sem bæði mörkin komu í uppbótatíma.
Um morguninn var greint frá því að stuðningsmenn Víkings hefðu farið á Meistaravelli um nóttina og málað bæði stúku og varamannaskýli KR rauð.

TENGT EFNI
Víkingar máluðu Meistaravelli rauða - „Algjörlega ólíðandi og óþolandi“
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var spurður út í skemmdarverkin eftir leikinn.
„Þetta tók ekki eina sekúndu af mínum tíma. Ég ætla alls ekki að láta eitthvað fólk úr Fossvoginum eyðileggja þennan dag fyrir mér. Ég held að menn hafi gert eins vel og þeir gátu að hreinsa þetta. Þetta dæmir sig sjálft," sagði Óskar Hrafn.
Óskar var spurður að því hvort hann hafi nýtt þetta til að mótivera leikmenn fyrir leikinn en KR er átta stigum á eftir Víkingi í titilbaráttunni.
„Það þarf ekki að nota eitthvað sem einhver sagði eða einhver málaði eitthvað á vegginn. Menn vita hvað var undir og fyrir okkur var það ekki endilega að við þyrftum að ná þessu niður í fimm stig. Þetta lið er ungt lið í toppbaráttunni, það var miklu mikilvægara að geta sagt eftir leikinn að við spiluðum toppbaráttuslag við Víking og stóðumst prófið. Þó við unnum ekki leikinn þá stóðumst við frammistöðuprófið."