Það er nóg um að vera í þýska boltanum í dag en alls eru sex leikir á dagskrá í efstu deild þar í landi.
Stærsta viðureign dagsins er mögulega klukkan 16:30 en RB Leipzig tekur þá á móti Schalke. Schalke hefur ekkert getað á tímabilinu og er án stiga eftir tvo leiki með markatöluna 1:11.
Borussia Dortmund á einnig leik í dag en liðið spilar við Freiburg klukkan 13:30. Fjórir aðrir leikir hefjast á sama tíma.
Dortmund er búið að tapa sínum fyrsta leik á tímabilinu til þessa en það var gegn Augsburg í síðustu umferð, 2-0.
Topplið Hoffenheim mætir þá Frankfurt á sama tíma Hoffenheim er með fullt hús stiga eftir fyrstu tvo leikina og er á toppnum ásamt einmitt Augsburg.
Hér má sjá leiki dagsins.
Laugardagur:
13:30 Stuttgart - Leverkusen
13:30 Werder Bremen - Arminia Bielefeld
13:30 Köln - Gladbach
13:30 Eintracht Frankfurt - Hoffenheim
13:30 Dortmund - Freiburg
16:30 RB Leipzig - Schalke 04
Athugasemdir