Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 04. janúar 2020 14:21
Ívan Guðjón Baldursson
Íslandsmótið í Futsal: Ísbjörninn sló Vængi Júpíters úr leik
Mynd: Ísbjörninn
Ljóst er að Vængir Júpíters munu ekki verja Íslandsmeistaratitilinn í Futsal eftir að hafa tapað gegn Ísbirninum í undanúrslitaleik í dag.

Staðan var jöfn 1-1 eftir venjulegan leiktíma en Ísbjörninn hafði betur með sigurmarki í framlengingu.

Ísbjörninn mun því spila til úrslita á Íslandsmótinu á morgun, annað hvort gegn Víkingi Ólafsvík eða sameinuðu liði Aftureldingar og Hvíta riddarans.

Vængir Júpíters tóku þátt í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu síðasta haust og töpuðu öllum leikjum sínum stórt, þeir enduðu með markatöluna 2-22.

Vængir Júpíters 1 - 2 Ísbjörninn
Athugasemdir
banner
banner
banner