Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 04. janúar 2020 11:00
Ívan Guðjón Baldursson
Solskjær og Pearson tilnefndir sem stjóri mánaðarins
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Nú standa yfir kosningar um leikmann, stjóra og mark mánaðarins í enska boltanum og eru tilnefningarnar klárar.

Jürgen Klopp er talinn líklegastur til að hreppa nafnbótina knattspyrnustjóri mánaðarins, fjórða mánuðinn af fyrstu fimm á deildartímabilinu. Liverpool vann alla leiki sína í desember þrátt fyrir mikið leikjaálag með riðlakeppni Meistaradeildarinnar og úrslitakeppni HM félagsliða.

Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, og Nigel Pearson sem er nýtekinn við Watford koma einnig til greina í kjörinu á stjóra mánaðarins.

Trent Alexander-Arnold er eini leikmaður Liverpool sem kemur til greina sem leikmaður mánaðarins. Jamie Vardy og Danny Ings skoruðu 5 mörk í 6 leikjum og koma báðir til greina. Dominic Calvert-Lewin gæti einnig verið valinn bestur eftir að hafa gert 5 mörk í 7 leikjum.

Kevin De Bruyne skoraði 3 og lagði önnur 3 upp í 6 leikjum og þá hélt Ben Foster hreinu í þremur leikjum af sex með fallbaráttuliði Watford. Emiliano Buendia og Adama Traore, leikmenn Norwich og Wolves, koma einnig til greina.

Vardy er eini leikmaðurinn sem hefur unnið til verðlaunanna áður á tímabilinu.


Stjóri mánaðarins:
Jurgen Klopp (LIV)
P5 W5 D0 L0 GF15 GA2

Nigel Pearson (WAT)
P4 W2 D1 L1 GF6 GA3

Ole Gunnar Solskjær (MUN)
P7 W4 D2 L1 GF13 GA8



Leikmaður mánaðarins:
Trent Alexander-Arnold (LIV)
P5 W5 D0 L0 G1 A3 CS3

Emiliano Buendia (NOR)
P7 W0 D3 L4 G0 A2

Dominic Calvert-Lewin (EVE)
P7 W3 D2 L2 G5 A0

Kevin De Bruyne (MCI)
P6 W4 D0 L2 G3 A3

Ben Foster (WAT)
P6 W2 D2 L2 CS3

Danny Ings (SOU)
P6 W3 D1 L2 G5 A0

Adama Traore (WOL)
P7 W3 D2 L2 G2 A1

Jamie Vardy (LEI)
P6 W3 D1 L2 G5 A0



Mark mánaðarins:
Jack Grealish (MUN 2-2 AVL) 1 Dec
Rodri (BUR 1-4 MCI) 3 Dec
Xherdan Shaqiri (LIV 5-2 EVE) 4 Dec
Son Heung-min (TOT 5-0 BUR) 7 Dec
Kevin De Bruyne (ARS 0-3 MCI) 15 Dec
Michael Obafemi (CHE 0-2 SOU) 26 Dec
Jordan Ayew (CRY 2-1 WHU) 26 Dec
Aaron Mooy (BHA 2-0 BOU) 28 Dec
Athugasemdir
banner
banner