Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 04. febrúar 2021 22:44
Victor Pálsson
Mourinho spurður út í Bale: Þú átt ekki skilið svar
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Tottenham, var spurður út í Gareth Bale, leikmann liðsins, eftir leik við Chelsea í kvöld.

Mourinho mætti sínu fyrrum félagi Chelsea og þurfti að taka við 1-0 tapi á heimavelli. Jorginho gerði mark Chelsea úr vítaspyrnu.

Bale var ónotaður varamaður hjá Tottenham sem þurfti lengi á marki að halda en sókn liðsins var ekki upp á sitt besta í viðureigninni.

Blaðakonan Alison Bender spurði Mourinho út í þá ákvörðun að setja Bale ekki inná og fékk hún athyglisvert svar.

„Góð spurning en þú átt ekki skilið svar,"
sagði Mourinho en það var um það síðasta sem hann sagði.

Bale hefur ekki mikið fengið að spila hjá Tottenham en hann var lánaður til félagsins frá Real Madrid í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner