Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 04. febrúar 2021 23:12
Victor Pálsson
Mourinho virtist skjóta á Alli eftir leik
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Tottenham, virtist skjóta á Dele Alli, leikmann liðsins, eftir leik við Chelsea í kvöld sem tapaðist, 1-0.

Mourinho nefndi leikmenn sem voru fjarri góðu gamni í kvöld og benti á að Tottenham gæti ekki notað "góðan Dele Alli" sem er meiddur þessa stundina.

Alli er alls ekki fyrsti maður á blað hjá Mourinho þó að hann hafi verið heill lengi vel á þessari leiktíð. Alls hefur Alli spilað 12 leiki í öllum keppnum og aðeins fjóra í deild.

Samband þeirra þykir ekki vera gott og er Alli reglulega orðaður við brottför.

„Sergio Reguilon er mikilvægur fyrir sóknarboltann. Harry Kane er mikilvægur fyrir sóknarboltann," sagði Mourinho.

„Giovani Lo Celso þýðir eitthvað fyrir sóknarboltann og líka góður Dele Alli sem við höfum ekki ennþá geta notað."

„Þetta snýst líka um að hafa ekki leikmennina til að breyta til. Sjálfstraustið spilar líka inn í."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner