Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 04. apríl 2021 10:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mynd: Þorði Werner ekki að skjóta sjálfur?
Mynd: Getty Images
Chelsea tapaði gegn WBA, 2-5, á heimavelli í gær. Chelsea komst í 1-0 en í kjölfarið fékk Thiago Silva að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt.

WBA skoraði næstu fjögur mörk leiksins áður en Mason Mount minnkaði muninn eftir miðbik seinni hálfleiks.

Timo Werner lagði upp markið en umræða hefur verið á samskiptamiðlinum Twitter um að Werner hafi hreinlega þorað að skjóta sjálfur.

Werner fékk boltann í dauðafæri en kaus að skjóta ekki og kom boltanum á Mount. Werner klikkaði á dauðafæri með þýska landsliðinu á dögunum og skoraði síðast með Chelsea fyrir einum og hálfum mánuði síðan.

Smelltu hér til að sjá annað mark Chelsea.

Athugasemdir
banner
banner
banner