Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
banner
   lau 04. apríl 2026 17:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Ákvað að skjóta í markmanninn og það virkaði"
Kjartan Kári átti góðan leik í Boganum í dag.
Kjartan Kári átti góðan leik í Boganum í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Gils auðvitað öskufljótur og síðan eru Adolf og Arnór ógeðslega góðir í fótbolta'
'Gils auðvitað öskufljótur og síðan eru Adolf og Arnór ógeðslega góðir í fótbolta'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér líður bara gríðarlega vel, það var kominn tími til að við myndum loksins vinna í bikarnum - unnum ekki síðustu tvö ár. Mér fannst við frábærir í þessum leik, gerðum það sem Jói sagði okkur að gera og það virkaði bara hrikalega vel," sagði Kjartan Kári Halldórsson, leikmaður FH, eftir sigur á Þór í Mjólkurbikarnum.

Kjartan átti góðan leik í Boganum, gerði Þórsurum reglulega lífið leitt og átti risastóran þátt í þriðja marki FH.

Lestu um leikinn: Þór 2 -  4 FH

„Við vissum að þetta yrði barátta, það er ekkert auðvelt að fara í Bogann og sækja þrjú stig (sigur og farmiða í næstu umferð). Við sóttum sigur í dag og erum gríðarlega ánægðir með það."

Þór komst yfir í leiknum en FH svaraði með fjórum mörkum.

„Það hefur verið góður andi í hópnum, höfum undirbúið okkur vel fyrir þennan leik og þó að við myndum lenda undir þá vorum við alltaf að fara halda áfram að gera það sem við vorum að gera. Það virkaði vel, skoruðum fjögur mörk eftir það."

„Mér fannst við vera spila mjög vel á köflum, hefðum getað lokað leiknum aðeins betur, en mér fannst við vera með þetta í okkar höndum eiginlega allan leikinn."


Fá frjálsræði og það virkaði í dag
Kjartan spilaði með þeim Arnóri Borg Guðjohnsen, Adolf Daða Birgissyni og Gils Gíslasyni í sókninni.

„Það er mjög skemmtilegt, við erum ekki stærstu 'target strikerarnir' eins og umtalað er, en við erum fljótir; Gils auðvitað öskufljótur og síðan eru Adolf og Arnór ógeðslega góðir í fótbolta. Við fáum frjálsræði og gerum okkar og það virkaði vel í dag."

Eins og fyrr segir átti Kjartan Kári stóran þátt í þriðja markinu. Hann átti fyrirgjöf (skot sem virtist ekki á leið á markið) sem markvörður Þórs misreiknaði og varði í eigið net.

„Ég var búinn að sjá að markvörðurinn var aðeins að taka sénsa þegar maður var að negla boltanum fyrir. Þannig ég ákvað að skjóta í hann og inn og það virkaði," sagði Kjartan og brosti.

Erum ekkert að fara breyta
Það hafa verið miklar breytingar hjá FH síðasta hálfa árið. Björn Daníel Sverrisson lagði skóna á hilluna, Böðvar Böðvarsson var látinn fara og Jóhannes Karl Guðjónsson tók við liðinu af Heimi Guðjónssyni.

„Mér líst mjög vel á þetta, við erum ungir og ferskir. Ég veit að það er búið að tala mjög mikið um þetta, en við erum ekkert að fara breyta, við erum bara að fara halda okkar áfram og þetta lítur mjög vel út. Við erum í fantaformi, svo eru það Eyjar næsta sunnudag, þá byrjar tímabilið almennilega."

Kjartan Kári fékk rifu í liðþófann í vetur en er ferskur í dag. „Ég held að ég sé bara tilbúinn, 100% allt mótið."

Vill fá Fylki og Heimi
Í lok viðtals sagði Kjartan að óskamótherjinn í næstu umferð væri Fylkir. „Er það ekk Fylkir eða? Fá Heimi," sagði Kjartan Kári og hló. Heimir Guðjónsson, fyrrum þjálfari FH, er þjálfari Fylkis sem vann KFA á fimmtudag.

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum efst
Slapp
banner
banner