Birkir ánægður hjá Aston Villa þrátt fyrir lítinn spiltíma
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Birkir Bjarnason hefur aðeins spilað örfáar mínútur síðan í janúar en hann hefur verið í frystikistunni hjá Aston Villa.
Þrátt fyrir lítinn spiltíma líður Birki vel hjá enska félaginu. Hann á eitt ár eftir af samningi sínum og segir ekki ljóst hvort hann muni hafa félagaskipti.
Aston Villa vann úrslitaleik umspilsins á Wembley og mun leika í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili.

„Ég á eitt ár eftir og við sjáum bara hvað gerist í sumar. Ég er rosa ánægður hjá félaginu, þetta er frábært félag. Ég hef áður verið í svona brekku og komist upp úr henni," sagði Birkir fyrir landsliðsæfingu í dag.
Landsliðið er að búa sig undir heimaleiki gegn Albaníu og Tyrklandi í undankeppni EM, leikirnir verða á laugardag og þriðjudag.
„Ég hef lítið spilað síðan í janúar en hef æft vel. Formið er mjög gott," sagði Birkir en viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.