Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fim 04. júní 2020 09:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Glódís Perla velur draumaliðið sitt
Mynd: Draumaliðsdeild 50skills
Glódís Perla í landsleik síðasta haust.
Glódís Perla í landsleik síðasta haust.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðskona og leikmaður Rosengard, hefur valið draumaliðið sitt í Draumaliðsdeild 50 skills. Pepsi Max-deild kvenna hefst eftir átta daga svo það styttist óðfluga í upphafssparkið.

Smelltu hér til að taka þátt í Draumaliðsleik 50 Skills.

„Ég er í stigaleit og set mikið traust á að Blikar og Valsarar byrji mótið sterkt á heimavelli!," segir Glódís en lið hennar í leiknum heitir bad boys.

„Birta er í marki enda mikill leiðtogi og góð í fótunum - my kind off goalie! Í vörninni er ég með Hallberu og Áslaugu Mundu - báðar með drauma vinstri fót sem skjótast upp til að assista og aftur niður til að halda hreinu, er hægt að biðja um meira? Svo er ég með unga og efnilega stelpu úr Selfoss milli þeirra sem mun blómstra í sumar við hliðina á reynsluboltanum Önnu Björk þannig allt verður í lás þar!"

„Á miðjunni mun Alexandra stjórna öllu spili eins og hún gerir best ásamt því að klára alltaf hlaupin sín í boxið. Er með Anítu og Hlín á sitthvorum kantinum sem eru báðar flínkar 1v1 og munu skila mér mörgum stigum ásamt spretthlauparanum Evu Lind!"

„Frammi er ég með tvær markamaskínur í Elínu og Berglindi ásamt Huldu Ósk sem fær stórt hlutverk hjá Þór/KA í sumar og verður spennandi að fylgjast með!,"
sagði Glódís.

Smelltu hér til að taka þátt í Draumaliðsleik 50 Skills.

Sjá einnig:
Kristjana velur draumaliðið sitt
Sandra María velur draumaliðið sitt
Sif Atladóttir velur draumaliðið sitt
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner