Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
   fim 04. júní 2026 11:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Nokkur félög hafa rætt við Tryggva Hrafn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í leik með ÍA sumarið 2020.
Í leik með ÍA sumarið 2020.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Síðustu daga og vikur hafa félög mátt hefja viðræður við leikmenn annarra félaga um samninga fyrir næsta tímabil. Þegar sex mánuðir eða minna eru eftir af samningi leikmanns mega önnur félög láta félagið sem leikmaðurinn er samningsbundinn vita af því að það ætli sér í viðræður við leikmanninn um möguleikann á því að fá hann eftir tímabilið.

Tryggvi Hrafn Haraldsson, leikmaður Vals, er einn af þeim leikmönnum sem verða samningslausir eftir tímabilið og hafa önnur félög sett sig í samband við hann. Valur hefur einnig rætt við hann um mögulegt framhald.

Tryggvi hefur sterklega verið orðaður við uppeldisfélagið sitt ÍA undanfarin misseri og er alveg ljóst að Skagamenn vilja fá hann til sín, helst sem fyrst.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafa Breiðablik og Stjarnan einnig sett sig í samband við sóknarmanninn.

Tryggvi er fæddur árið 1996 og er algjör lykilmaður í leik Vals. Hann hefur skorað fimm mörk og lagt upp fimm á þessu tímabili ásamt því að koma að fleiri mörkum liðsins. Á síðasta tímabili skoraði hann ellefu mörk og lagði upp átta í deildinni. Hann hefur á sínum ferli leikið með ÍA, Halmstad, Lilleström og Val.

Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, var spurður út í Tryggva eftir sigur ÍA á FH síðasta föstudag.

„Ég á alveg nóg með að þjálfa liðið, ég stend ekkert í þessu. Ég held það sé alveg hver afstaða Skagans er gagnvart Tryggva. Ef þú þarft að fá fleiri upplýsingar en það þá verðuru að ná í Ingimar (framkvæmdastjóra ÍA)," sagði Lárus Orri við Stefán Martein Ólafsson, fréttaritara Fótbolta.net. Stutt var í brosið hjá þjálfaranum eins og sjá má í lok viðtalsins hér fyrir neðan.
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Slapp
banner
banner