Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
   fim 04. júní 2026 14:09
Kári Snorrason
Unglingalandsliðsmarkvörður semur við Blika
Mynd: Breiðablik
Elmar Ágúst Halldórsson hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við Breiðablik.

Elmar er 16 ára gamall og á að baki tíu landsleiki fyrir yngri landslið Íslands. Hann er nú í U16 ára landsliðinu.

Í tilkynningu Breiðabliks segir að Elmar hafi æft af og til með meistaraflokki félagsins en hann leikur með 2. og 3. flokki Blika.

Breiðablik seldi á dögunum hinn 19 ára markvörð Jón Sölva Símonarson til ÍA. Skagamenn fengu undanþágu til að ganga frá kaupunum vegna ristarbrots Árna Marinós Einarssonar.


Slapp
banner
banner